Method
-
1
Þeytið smjör og sykur saman þar til það er orðið létt og ljóst, bætið eggjum saman við einu í einu, og þeytið vel á milli. Bætið hveiti, lyftidufti, salti og rifnum sítrónuberki út í ásamt 1/2 bolla af mjólk. Bætið aðeins meiri mjólk í ef þetta virðist vera of þykkt. Blandið bláberjum sem velt hefur verið upp úr svolitlu hveiti varlega saman við með sleif.
-
2
Setjið í vel smurt formkökuform og bakið við 170°C í 65 mín
-
3
Stingið með próni á mörgum stöðum í kökuna um leið og hún er tekin úr ofninum og hellið sítrónu/sykurblöndunni yfir kökuna.
-
4
ATH: Má frysta í sneiðum, raða þá í box með bökunarpappír á milli. Passar þá að taka út meðan maður hellir uppá kaffi og njóta svo. Ég hef líka notað frosin jarðaber sem ég sker í litla bita í staðin fyrir bláberin